Thursday, April 10, 2008

það er komið vor.
heldur betur.
nýr andi í húsinu.. allir alltaf brosandi og fuglasöngur úti. amen.

ég er líka miklu léttari í kollinum þessa dagana.. ahh.. það er eins og það se búið að þurrka ský af kollinum. ég sé og hugsa skýrar.

ég er spennt yfir sumrinu.. væri reyndar til í að vera meira á íslandi en við komum heim í ágúst.
Auðunn er að drepa geitung sem flaug inn rétt í þessu..

ég ætla að skjótast út í sólina... þarf að taka nokkrar myndir niðrí bæ.. ætla að eyða svona 2klst í það og svo kaffi með melkorku niðrí spitalfields..
Auðunn greyið þarf að skrifa ritgerð eins og alltaf.

ég hef rauninni ekki mikið að segja.. það sem er framundan er helgarferð til noregs næstu helgi í brúðkaup, svo art/music/theatre thingy í Shunt Lounge með Bottlefed leikhópnum svo vinna í Maddid því hún er að fara til Spánar á listafestival.....

þið sem eigið leið ykkar til London.. kíkið við í Shunt.. underground venue fyrir allskonar listfólk.. music og djamm.. mjög skemmtilegur staður fyrir experimental dót.. er undir London Bridge.. við sýnum í lok apríl..

jamms.. ég er aaaaalltaf með brjóstsviða.. er að vinna í því og allir á heimilinu að vorkenna mér yfir leiðinda mataræðinu sem ég þarf að vera á í nokkrar vikur til að losna við bakteríuna sem veldur þessu rugli.. ég er ekki búin að drekka kaffi í 3 vikur!!! ég! það hefur aldrei gerst.. og svo fékk ég sendann íslenskann lakkrís en geymi hann í allavega viku í viðbót.... guð hvað ég hlakka til að fá lakkrís.. en núna er bara tedrykkja og kínverskar jurtir.. namm.

fékk mér reyndar 2 rauðvínsglös í gærkvöldi og núna er ég ég með brjóstsviða.. jebbs.. bannað að svindla greinilega.. talað um að það taki 3-4 vikur að ná þessu úr sér.. ein vika eftir.

skemmtilegar fréttir er það ekki?

what else?
já ég þarf að fara koma mér.. lítill bloggandi þessa dagana ég veit... mig langar bara að spjalla við ykkur on the phone..

allavega.. ég verð í bandi..
æ já ég var búin að gleyma ég ætlaði að byrja að skrifa meil.. málið er að auðunn er alltaf í tölvunni að skrifa ritgerðir svo þegar ég kemst í hana þá þarf ég yfirleitt að svara leiðilegum meilum varðandi verkefni og þh. en það er enginn afsökun.. ætla að koma mér í það bráðum

lovjú og missjú,
vala