Tuesday, March 25, 2008

hæ gott fólk.

tölvudagur í dag. gera proposal fyrir leikverk og annað svona tölvustúss. það er fínt þegar það er kalt og grátt úti. og líka sniðugt að heilsa aðeins upp á ykkur.

páskarnir voru kósí. á föstudaginn langa var afmælispartý og svo á laugardaginn versluðum við Auðunn og meðleigendur okkar inn allskonar góðgæti fyrir páskadag og höfðum það svo gott yfir helgina.. bara rólegheit, allir heima.. baka og þannig fílingur. þurfti svo að fara á leikæfingu á mánudaginn.. það snjóaði á leiðinni.. en var svo búin um klukkan 4 og rölti heim í kuldanum.. bjart, kalt, smá snjór og afgangur af páskaeggi...

en núna er ég tilbúin fyrir vorið. þetta er komið fínt!

Isla og Jordi eru að fá sér te inn í eldhúsi og ég og Auðunn sitjum með kaffi inní stofu. hann að lesa og ég.. já þið vitið hvað ég er að gera.

ég er svöng. klukkan er korter í 7 og við Auðunn erum að spá í að fá okkur silung og salat.

Jordi er að reyna að segja mér eitthvað svo ég er farin í bili...
enda hef ég ekkert að segja.

Wednesday, March 19, 2008

hæ...
er svo þreytt eitthvað..
hvenær kemur vorið?????

ég er komin með vefsíðu með leikhópnum mínum Footprint Project
http://www.footprintproject.org/ ég held hún sé bara ágæt.

er að borða morgunmat og ég þarf að fara að taka myndir af wannabees og fara svo á leikæfingu..
er eiginlega of þreytt til þess að drífa mig á stað.
en það er ekki til kaffi og þess vegna er ég ekki búin að kveikja á kollinum.
fæ mér bara kaffi með ferðahatt niðrí bæ......

mig langar að kaupa föt.
erum bráðum að fara í brúðkaup hjá Mari og Robin og mig vantar beautiful kjól.

hvað segiði yfir krónunni fólk?!!!
ég aldrei aftur að geyma listastyrki sem ég fæ sem íslenskar krónur á íslenskum reikningi!
ég las einhvers staðar að við íslendingar eru skuldugusta þjóð í heimi. smart.

æjji ég ætla ekki að byrja daginn á að hugsa um peninga.

páskar næstu helgi!! erum búin að fá íslensk páskaegg send yfir.. ætlum svo bara að hafa rólega helgi.. okkur er reyndar boðið í 2 afmæli.. eitt á fös og eitt á lau.. nenni því varla.. allavega ekki eins og er.. kannski að því ég er ekki búin að fá kaffið mitt í dag og nenni engu.. jú maður lætur sjá sig.. þarf reyndar að vinna í Maddid á laugardaginn.. bara smá.. svo er reyndar leikæfing með Bottlefed allan mánudaginn.. sem er víst annar í páskum i guess.. EN sunnudagurinn verður til sælu.... ooo ég vildi að það væri kominn sunnudagur..

vinkona mín er að fara að gifta sig og úff vesenið í kringum það.. ég nenni ekki að standa í brúðkaupsplönum og stússi fyrr en við höfum tíma og pening til að leyfa okkur að setja verkefni og þh á hold.. mig langar að vera á íslandi í stússinu.. mig langar líka að vera á íslandi í óléttustússinu.. af hverju er ég að pæla í þessu? já af því ég er ekki búin að fá mér morgunkaffið. kollurinn er kominn út í ruglið.
ætla að fara redda því og skottast um bæinn.

tala við ykkur fljótlega!
v.

Friday, March 14, 2008

hæ.. já ég veit.. ég get ekki ákveðið hvar bloggið á heima.
en mér finnst hitt bara svo leiðilegt og myglað.
og það er líka bara skemmtilegra að meilast á.. eins og ég er núna að byrja að gera.. svona persónuleg hæ meil á miðjum vinnudegi eru best.
þannig að þið meigið fara búast við meili þið sem hafið þegar ekki fengið meil.. þetta er mitt nýja.. svona eins og maður gerði þegar maður var lítill og nýfluttur til new york, einn og vitlaus.. þá var nú mikið um bréfa og meila skriftir.

allavega..
það er föstudagur..
kíkjum aðeins í eitt afmæli í kvöld.. en bara stutt... það er allavega planið.
klukkan er hálf 10 um morguninn og ég heyri smá fuglasöng.. ég er svo spennt yfir vorinu að ég vil helst bara leggjast í dvala þangað til... þetta er búinn að vera svo kaldur og langur vetur eitthvað.. ég veit þið segið núna að ég geti ekki kvartað þar sem það er búið að vera snjór og læti heima... en þið skiljið.. kuldinn gerir mann bara svo þreyttann..

ég var að hugsa um forgangsraðir í gær.. hvað setur maður í forgang? og af hverju?
ég finn að ég set alltaf verkefni sem ég er að vinna í í forgang en hugsa svo að þegar ég er orðin róleg yfir hlutunum (komin á þann stað í lífinu að maður getur sett vinnu og verkefni á hold án þess að missa af lestinni) þá verður gott að geta sett annað í forgang.. eða hvað?
æjji bla...

ég er spennt yfir fríi.. eftir leikfestivalið á Spáni sem ég er að fara á með Footprint leikhópnum, er búið þá förum við Auðunn beint yfir til fjölskyldu minnar sem verða með íbúð á spáni rétt hjá Barcelóna.. ætlum að slaka á þar í nokkra daga.. svo beint aftur heim til London til að halda áfram að vinna í 2 verkum.. og svo Ísland í ágúst.

hvenær er sumardagurinn fyrsti?

mig langar að kaupa mér sandala..
ooo.. þegar það verður hlýtt og alltaf sól.. þá ætla ég að vakna brosandi og sofna brosandi!

heyri í ykkur fljótlega.
v.

Monday, March 10, 2008

hæ músur og mannar..

mánudagur í dag.. heldur betur!
ógeðslega þreytt..
grá rigning í Londonborg.. leiðinda dagur.

helgin var kósí.. erum að reyna að vera sparsöm.. fórum reyndar á eina sýningu en það var ókeypis.. vinir okkar að sýna.. enduðum svo í eftirpartý hjá vinum okkar og gistum þar í stóra húsinu þeirra.. mest allt tónlistarfólk svo nóttin var kósí.. bara söngur og spil.. við vöknuðum svo um hádegi og fórum heim og gerðum risa breskann morgunmat og lágum í þynnku yfir bíómyndum.

ööömm... það er reyndar ekkert að frétta.. er að drepa tímann þangað til ég fer á æfingu..

xxx
vala

Wednesday, March 05, 2008

hæ.

ég veit ég er alveg vonlaus í þessu bloggi.
ég ætti kannski bara að koma með fréttir í gegnum meil eins og í gamla daga.. það er nefnilega svo oft sem mig langar að segja ykkur fréttir en veit ekki hvort einhverjir aðrir en vinir mínir lesa þetta.

mig langar oft að vera í bandi við ykkur í gegnum póstinn.. þetta blogg er alltaf svo spes.. en allavega.. hér eru smá fréttir:

við Auðunn héldum afmælisvikuna okkar í síðustu viku.. á afmælinu hans vakti ég hann með morgunmat, pakka og köku í rúmið, áttum svo bara kósí dag og fórum svo í dinner og leikhús og enduðum í eftirdrykk.. mjög næs.. hérna á southbank.. mannlífið svo skemmtillegt og bara stutt labb frá þar sem við búum núna.

svo átti ég afmæli og svipaður dagur.. hann vakti mig með morgunmat og pakka í rúmið og við fórum í bæinn að leika okkur og svo eldaði hann dinner handa mér því við ákváðum að fara ekki aftur fínt út að borða... erum ekki millar eins og er.. en það kemur að því..

svo var afmælisveislan okkar sameiginlega á föstudaginn.. 15-20 vinir okkar komu á skemmtilegann bar/klúbb í Hoxton square og enduðum við svo nokkur á brick lane..

jájá.. svo er Auðunn kominn á fullt í ritgerðarskrifum.. ég er að vinna í 3 verkefnum með 3 leikhópum.. Footprint Project www.footprintproject.org Maddid Theatre Company www.myspace.com/maddidtheatrecompany og Bottlefed Ensemble http://www.bottlefed.org/ bara svona ef ykkur leiðist og langar að sjá hvað ég er að bralla.. Footprint verður komin með vefsíðu eftir 2 vikur... það sem er sem sagt á dagskrá er sýning í Júní með Footprint, sýning í lok júlí með Bottlefed og svo sennilegast Maddid í reykjavik í ágúst.

svo part time er ég enn að finna fólk til að vera extras í tv og þannig fyrir umboðsskrifstofu. það er allt í lagi, skemmtilegt fólk sem vinna með mér, og ekkert til að stressast yfir.. bara svona til að borga leiguna og þannig.

jæja.. þetta eru allavega einhverjar fréttir...

við tókum garðinn okkar litla í gegn á sunnudaginn svo við erum öll spennt yfir að vorið sé að koma (það er reyndar ógeðslega kalt ennþá en sólin er að sýna sig) svo við erum bara búin að plana grill, sólbað og gleði í garðinum okkar í sumar.. ykkur er velkomið!! Jordi meðleigandi ætlar að gera sangría drykki og Auðunn grillar eitthvað gott..

jæja núna þarf ég að fara drífa mig.. taka nokkrar myndir og svo æfing með Bottlefed leikhópnum og tónlistarmönnunum sem vinna með okkur.. fyrsta æfingin með tónlistarmönnunum um daginn og það var snilld.. þau spila á double bass, fiðlu, saxafón og selló... gaman.

jæja verða að fara..

kem með fréttir eða bara eitthvað bull fljótlega...
lovlovlov
vala