Friday, August 31, 2007

aftur...

þegar ég flutti til new york, lítil og krúttilega vitlaus í kollinum þá bloggaði ég, næstum daglega, í mörg ár. svo hætti ég því. hélt það væri bara rugl að skrifa um ekkert og skrifaði í staðin ritgerðir sem voru metnar með einkunum.
nú er ég aftur orðin krúttilega vitlaus í kollinum og mér líður vel með það.

margt hefur gerst síðan ég skrifaði síðast. þó það nú væri.

ég er stödd á íslandi í þessum töluðu orðum en fer aftur heim til London eftir 3 vikur. þetta sumar er búið að vera ótrúlegt, og ég nota sjaldan orðið "ótrúlegt". við manni minn erum búin að vera á landinu í allt sumar og höfum hagað okkur eins og spilltir wall street krakkar.. höfum leyft okkur allt og nánast étið og drukkið upp ísland eins og það leggur sig. magnað. en við líka komum hingað til þess að tjútta með vinum og fjölskyldum. svo it's been done.

svo förum við aftur heim og munum búa í sætri íbúð á ágætum stað í London með Islu og Jordi. Isla er vinkona mín sem ég kynntist í leiklistarskólanum en hún er rithöfundur og leikari og skrifaði einleikinn What Now Maddid sem ég lék í síðastliðið vor. Jordi er hinsvegar kærasti frænku Auðuns og er að fara í listaháskóla í London...
Auðunn er svo að fara klára sítt síðasta ár í háskólanum en hann er í þróunarfræðum og alþjóðlegum stjórnmálum..
ég útskrifaðist í fyrra og mun halda áfram að gera mín leikverkefni, en það eru tvö í vinnslu, eitt komið með samning í nýju leikhúsi og annað að þróast áfram frá fyrra leikhúsi..
svo það verður nóg að gera á okkar heimili.. meira um það seinna.

nú þar sem við erum stödd í þessum töluðu orðum, er að ég er sem sagt á íslandi í misgóðum fíling.. annars vegar high up in the sky (án hjálparefna.. bara on life) þar sem gleðin og vinafundirnir hafa verið ófáir í sumar. en svo hef ég líka fengið niðurtúra á næturnar þar sem ég ligg andvaka og hugsa um verkefni, peninga, verkefni, framtíðina, og verkefni... er með svo margar hugmyndir og vil helst vinna á næturnar.. þá verð ég stressuð því ég á að vera sofandi. í gærnótt fann ég svo allt í einu fyrir því að sköpun og tjáning með action er ekki endilega eina þörfin mín.. mig langaði til að skrifa.. bara eitthvað bull.. bara hugsanir.. og ekki í dagbók/vinnubók... því þá fer ég að skrifa fyrir verkefni og fæ samviskubit ef ég er ekki að skrifa/semja fyrir verk.. allavega.. mundi ég þá eftir gamla góða blogginu.. þar getur maður skrifað bull án þess að hugsa um að það sé eitthvað sem tengist verkefnum og vinnu.. heldur bara um lífið og huxið.. eða bara til að heilsa upp á liðið með einu hæ með morgunkaffinu..

þannig að já.. ég er sem sagt byrjuð þessu aftur og kem sennilegast með tilgangslausar sögur eða fréttir af Londonlífinu eða slúður af dramaliðinu..

bið að heilsa í bæinn..
vala óm