Sunday, January 06, 2008

hæ.
og til hamingju með 2008!
gamað að þetta frábæra ár sé byrjað.. úff það verður magnað.

það byrjaði allavega vel.
héldum sem sagt gamlárspartý hérna í London.
10 manns í mat.. forréttur, kalkúnn og eftirréttur.
vorum góð blanda, nokkrir vinir okkar frá íslandi og nokkrir vinir okkar hérna í London.

fórum svo öll niður að á ásamt milljón londonbúum, allir öskrandi og bíbandi, með kampavín og tilheyrandi. alveg magnað.

þetta var held ég bara eitt af vel heppnuðustu gamlárskvöldum sem ég hef upplifað..

svo byrjuðu æfingar á leiksýningunni Exile strax og er ég er búin að vera á fullu við að semja og leika frá morgni til kvölds.. var að koma heim af æfingu. sunnudagur. kl er 6. Audunn er út í búð að kaupa í matinn og rauðvín. ætla að slaka aðeins á..

sýningar hefjast 15. Jan.. væri gaman ef þið gætuð komið.. tengdó, Rósa systir og Hákon kærasti hennar koma allavega.. svo það er gaman.

jæja nú jæja.. vildi allavega bara segja hæ og láta vita af mér.. hitti ekki alla heima um jólin því fríið var svo stutt.. en svona er það bara.. stoppum lengur næst!!

ókei tala við ykkur fljótlega
love,
v.