Tuesday, January 29, 2008

fyrir verkefna spenningur.

var að koma heim.
vorum á kaffihúsi á Brick Lane.
ást í loftinu.
kjúklingur í kvöldmatinn.
breinstorma fyrir næsta maddid verkefni.

er búin að jafna mig eftir mikinn gestagang og sýningatímabil.
er að fara byrja í byrjun feb að vinna með öðrum leikhóp og tónlistarmönnum.
spennt.

Audunn búinn í prófum.
heimapartý um helgina.
of mikil drykkja.
of lítið movement (dans/jóga/pilates/)
en er að fara að byrja að taka capoeira tíma með vinkonu minni úr footprint leikhópnum.
hef gott af því.

í kvöld ætlum við að horfa á Derrida sem Auddi fékk á bókasafninu.
og slaka á..
og og og..

bla.
ég skal segja eitthvað sem gefur ykkur innblástur næst.
í dag er bara mómentið núna.

bless smúls

Wednesday, January 23, 2008

eftir verkefni bláleiki..

hellist alltaf yfir mig eftir verkefni.
en núna ætla ég bara að njóta bláleikans. fara undir sæng og horfa á woody allen mynd.

í gær var fyrsti frídagurinn minn síðan gamlárs. lokasýningin var á sunnudaginn og rósa systir og hákon voru hérna í heimsókn hjá okkur yfir helgina. eftir lokasýninguna fór ég með þeim, Audda, og nokkrum vinum okkar á bar rétt hjá leikhúsinu.. mikið spjallað og hlegið.. spennufall eftir lokasýningu og gleði yfir drykk með vinum er mín uppáhalds tilfinnining.

á leiðinni heim asnaðist ég svo að draga þau nokkur með mér í angel.. en það var allt lokað og þar sem þetta er ekki mitt hverfi þá löbbuðum við einhvern óþarfa hring í hálftíma.. þá fannst mér ég náttlega hafa eyðilagt gott kvöld en þau bara hlógu af mér og við fengum okkur bara miðnætur kebab..

daginn eftir tókum við Auðunn túrista dag með Rósu og Hákoni þar sem þetta var þeirra síðasti dagur hér í London. en svo byrjaði að rigna og við stukkum inn á einhvern random pub til að brainstorma um hvað við gætum gert. eftir 3 hvítvínsflöskur og nokkra bjóra þá var ljóst að rigningin væri hætt en við enn þarna.
bara mjög næs.
skemmtum okkur bara mjög vel á einhverjum glötuðum pub..

öömm.. hvað fleira.. já ég ætti kannski að vinna smá.. taka random myndir fyrir casting scouting.. mjög leiðilegt.. en tók mjög lítið af myndum í æfingartímabilinu og engar meðan sýningarnar stóðu yfir.

og núna er ég löt.

ég ætla að leyfa síðasta verkefni að anda (sem þýðir: ég að sofa og vera löt í nokkra daga) en svo byrja ég á næsta verkefni mjög fljótlega.

ég kannski blogga meira núna þessa dagana..

allavega,
mig langar að fara í nokkra daga til íslands og hitta ykkur.

ég fæ allavega nýja munnhörpu í afmælisgjöf.. kannski flug til íslands líka. við erum búin að fresta parísarferðinni til lok mars.

heyri í ykkur sem fyrst...
vala

Sunday, January 06, 2008

hæ.
og til hamingju með 2008!
gamað að þetta frábæra ár sé byrjað.. úff það verður magnað.

það byrjaði allavega vel.
héldum sem sagt gamlárspartý hérna í London.
10 manns í mat.. forréttur, kalkúnn og eftirréttur.
vorum góð blanda, nokkrir vinir okkar frá íslandi og nokkrir vinir okkar hérna í London.

fórum svo öll niður að á ásamt milljón londonbúum, allir öskrandi og bíbandi, með kampavín og tilheyrandi. alveg magnað.

þetta var held ég bara eitt af vel heppnuðustu gamlárskvöldum sem ég hef upplifað..

svo byrjuðu æfingar á leiksýningunni Exile strax og er ég er búin að vera á fullu við að semja og leika frá morgni til kvölds.. var að koma heim af æfingu. sunnudagur. kl er 6. Audunn er út í búð að kaupa í matinn og rauðvín. ætla að slaka aðeins á..

sýningar hefjast 15. Jan.. væri gaman ef þið gætuð komið.. tengdó, Rósa systir og Hákon kærasti hennar koma allavega.. svo það er gaman.

jæja nú jæja.. vildi allavega bara segja hæ og láta vita af mér.. hitti ekki alla heima um jólin því fríið var svo stutt.. en svona er það bara.. stoppum lengur næst!!

ókei tala við ykkur fljótlega
love,
v.