casting...
sit inn í stofu með manninum mínum og einum af okkar roommate.. fótbolti, bjór, nammi og litlu jólin. erum að leyfa okkur að hafa það kósí.. strákarnir að tala um fótbolta.. svo ég ákvað að segja hæ.. hæ.
búið að vera geðsýki að gera og verður fram að helgi.
er búin að vera að fara yfir ferilskrár og umsóknir frá leikurum og leikhópum.. sem sagt bæði fyrir leikhús festival sem verður á næsta ári í leikhúsinu sem Maddid var sett up í.. vinkona mín er manager þar og bað mig um að hjálpa sér að setja upp þetta árlega festival. og svo hef ég verið að fara yfir ferilskrár frá leikurum sem eru að sækja um að vera í næsta verki okkar í janúar, með hinum leikhópnum, því einn leikarinn sem var í verkinu með okkur í fyrra fékk hlutverk á west end og þarf þá einhver að hlaupa í skarðið.. fengum send inn næstum 80 umsóknir frá hinum og þessum útskrifuðum leikurum í Londonbæ..
þannig að ég er bara allt í einu hinum megin við borðið.. soltið gaman bara. leikstjórinn bað mig líka um að hjálpa við að halda prufuna, leikararnir þurfa að sýna sköpunarhæfileika sýna ásamt leikhæfileikum.. þannig á föstudaginn höldum við prufuna fyrir útvalda leikara.
svo er ég bara að taka myndir á fullu fyrir casting management.. finna extras.. mjög leiðilegt en ágætlega borgað miðað við random part time drasl vinnu með verkefnum.. svo ég má ekki kvarta.. enda jólin og fríið að byrja.
ég hlakka svo til að hitta ykkur múmúar!
strákarnir eru enn að tala um fótbolta.. en við skemmtum okkur mjög vel öll saman.. dugleg að hafa gjörninga... hlægjum mikið.. enda Jordi roommate alltaf með stand up í eldhúsinu.. ég hlæ allavega alla daga, og frekar mikið....
fíflalæti, drama, stemmning, rólegheit, dugnaður, kósíheit, gjörningar og plön er góð samblanda.
jæja.. vinna og halda prufu, kaupa jólagjafir og kveðjujóladrykkir.. svo heim í hitann. (ég ímynda mér alltaf að það sé hlýtt heima.. kannski af því að ég er alltaf í ullarpeysu og í ullarsokkum hérna heima í London... það er allavega hlýtt inni heima á ísl.. ?
jæja ætla að rugla og bulla og fá mér bjór og hlaup.. umm góð random blanda.
ást.
veils
