eftir verkefni bláleiki..
hellist alltaf yfir mig eftir verkefni.
en núna ætla ég bara að njóta bláleikans. fara undir sæng og horfa á woody allen mynd.
í gær var fyrsti frídagurinn minn síðan gamlárs. lokasýningin var á sunnudaginn og rósa systir og hákon voru hérna í heimsókn hjá okkur yfir helgina. eftir lokasýninguna fór ég með þeim, Audda, og nokkrum vinum okkar á bar rétt hjá leikhúsinu.. mikið spjallað og hlegið.. spennufall eftir lokasýningu og gleði yfir drykk með vinum er mín uppáhalds tilfinnining.
á leiðinni heim asnaðist ég svo að draga þau nokkur með mér í angel.. en það var allt lokað og þar sem þetta er ekki mitt hverfi þá löbbuðum við einhvern óþarfa hring í hálftíma.. þá fannst mér ég náttlega hafa eyðilagt gott kvöld en þau bara hlógu af mér og við fengum okkur bara miðnætur kebab..
daginn eftir tókum við Auðunn túrista dag með Rósu og Hákoni þar sem þetta var þeirra síðasti dagur hér í London. en svo byrjaði að rigna og við stukkum inn á einhvern random pub til að brainstorma um hvað við gætum gert. eftir 3 hvítvínsflöskur og nokkra bjóra þá var ljóst að rigningin væri hætt en við enn þarna.
bara mjög næs.
skemmtum okkur bara mjög vel á einhverjum glötuðum pub..
öömm.. hvað fleira.. já ég ætti kannski að vinna smá.. taka random myndir fyrir casting scouting.. mjög leiðilegt.. en tók mjög lítið af myndum í æfingartímabilinu og engar meðan sýningarnar stóðu yfir.
og núna er ég löt.
ég ætla að leyfa síðasta verkefni að anda (sem þýðir: ég að sofa og vera löt í nokkra daga) en svo byrja ég á næsta verkefni mjög fljótlega.
ég kannski blogga meira núna þessa dagana..
allavega,
mig langar að fara í nokkra daga til íslands og hitta ykkur.
ég fæ allavega nýja munnhörpu í afmælisgjöf.. kannski flug til íslands líka. við erum búin að fresta parísarferðinni til lok mars.
heyri í ykkur sem fyrst...
vala