Tuesday, December 11, 2007

casting...

sit inn í stofu með manninum mínum og einum af okkar roommate.. fótbolti, bjór, nammi og litlu jólin. erum að leyfa okkur að hafa það kósí.. strákarnir að tala um fótbolta.. svo ég ákvað að segja hæ.. hæ.

búið að vera geðsýki að gera og verður fram að helgi.
er búin að vera að fara yfir ferilskrár og umsóknir frá leikurum og leikhópum.. sem sagt bæði fyrir leikhús festival sem verður á næsta ári í leikhúsinu sem Maddid var sett up í.. vinkona mín er manager þar og bað mig um að hjálpa sér að setja upp þetta árlega festival. og svo hef ég verið að fara yfir ferilskrár frá leikurum sem eru að sækja um að vera í næsta verki okkar í janúar, með hinum leikhópnum, því einn leikarinn sem var í verkinu með okkur í fyrra fékk hlutverk á west end og þarf þá einhver að hlaupa í skarðið.. fengum send inn næstum 80 umsóknir frá hinum og þessum útskrifuðum leikurum í Londonbæ..
þannig að ég er bara allt í einu hinum megin við borðið.. soltið gaman bara. leikstjórinn bað mig líka um að hjálpa við að halda prufuna, leikararnir þurfa að sýna sköpunarhæfileika sýna ásamt leikhæfileikum.. þannig á föstudaginn höldum við prufuna fyrir útvalda leikara.

svo er ég bara að taka myndir á fullu fyrir casting management.. finna extras.. mjög leiðilegt en ágætlega borgað miðað við random part time drasl vinnu með verkefnum.. svo ég má ekki kvarta.. enda jólin og fríið að byrja.

ég hlakka svo til að hitta ykkur múmúar!

strákarnir eru enn að tala um fótbolta.. en við skemmtum okkur mjög vel öll saman.. dugleg að hafa gjörninga... hlægjum mikið.. enda Jordi roommate alltaf með stand up í eldhúsinu.. ég hlæ allavega alla daga, og frekar mikið....
fíflalæti, drama, stemmning, rólegheit, dugnaður, kósíheit, gjörningar og plön er góð samblanda.

jæja.. vinna og halda prufu, kaupa jólagjafir og kveðjujóladrykkir.. svo heim í hitann. (ég ímynda mér alltaf að það sé hlýtt heima.. kannski af því að ég er alltaf í ullarpeysu og í ullarsokkum hérna heima í London... það er allavega hlýtt inni heima á ísl.. ?

jæja ætla að rugla og bulla og fá mér bjór og hlaup.. umm góð random blanda.

ást.
veils

Friday, December 07, 2007

jæja.
lífið er gott.

fór í tveggja daga geðsjúka prufu um daginn, var ekki viss hvernig mér gekk því ég var hálfslöpp, þurftum að semja senu út frá texta sem rithöfundurinn úr Companýinu skrifaði. þurftum að semja með öðrum leikurum líka og svo í seinni prufunni unnum við með tónlistarmönnum sem munu vinna með companýinu í næsta verki.
góð prufa. svo bara bíða eftir svari. vissi að þau myndu velja 5 leikara fyrir næsta verk.

jæja, var að fá svar. var valin. amen. takk elsku alheimur!

gott mál. og tímalega séð alveg frábært. er einmitt að setja upp aðra sýningu í Jan, en æfingar fyrir þetta verk byrja ekki fyrr en í febrúar.

þarf að fara að vinna núna. takar myndir af fólki út í bæ. nenni því ekki alveg núna. en vinkona mín ætlar að vinna líka. svo ætla ég að hitta aðra vinkonu mína á kaffihúsi beint eftir vinnu og við ætlum að sjá sýningu sem ég fékk hlutverk í en var á íslandi svo ég missti af því. ætlum að sjá hvað ég er að missa af:/
Auðunn er að læra á fullu en ætlar að reyna kannski að taka sér pásu og hitta okkur upp í leikhúsi í kvöld.. hefur gott að því.

svo er afmæli annaðkvöld og jólastúss.. hlakka til:)

amm.. já ég þurfti bara að tjá mig um þessar góðu fréttir þar sem flestir á heimilinu eru farnir í skólann/vinnu....

ömm.. ég ætla að fara fljótlega.. fá mér kaffi með ferðahatt (heitir það ekki eitthvað svoleiðis heima?) "get ég fengið jakka líka" (það er pappírinn utan um bollann) bla.

jæja. best að drífa sig. eins og þið sjáið þá er ég komin á ról með þetta blogg. mér finnst það bara gott mál. gott að heilsa upp á ykkur. gott að kasta einhverju bulli niður á blað.

tala við ykkur fljótlega.

luvluv.
veils

Wednesday, December 05, 2007

sick.. in the head and body.

ég er með flensu og hef ekki tíma fyrir það.
enginn heima. Auddi og Jordi í skólanum og Isla að vinna. ég að horfa á daytime tv upp í sófa með kaffi og teppi.

er samt að fara í prufu í kvöld, fyrsti helimingurinn var á mánudaginn og svo er lokaparturinn í kvöld. langar prufur því við þurfum bæði að leika og semja. á mánudaginn þurfti ég að semja senu og leika hana út frá texta sem við fengum en við þurftum að bæta við textann og breyta subjectinu þannig að úr verði ný saga. það var sólo sena. svo semja með hóp. svo improvisa og allskonar fleira. í kvöld vinnum við með tónlistarmönnum og notum tónlist þeirra í spunavinnunni og fleira. allskonar bara.

fór sem sagt ekki að vinna í dag.
en ég ræð vinnutímanum mínum þannig að ég vinn bara meira á morgunn og hinn (taka myndir af fólki fyrir casting management) svo um helgina er afmælispartý og jólagjafainnkaup og svo kveðjudrykkur með íslenska parinu Ingu og Dóra, en þau er að flytja heim til Íslands. svo taka myndir á mánudags til fimmtudags. svo höldum við prufu fyrir einn leikara á föstudaginn því einn leikarinn úr hópnum fékk hlutverk á west end, okkur vantar því einn strák fyrir sýninguna í Jan. svo um kvöldið förum við nokkur sennilegast á tónleika sem kærasti vinkonu minnar var búinn að taka frá miða fyrir.. svo pakka niður og svo heim til Íslands í jólafrí!!

gleði.

núna er ég bara í ruglinu.. margt sem mig langar að tjá mig um varðandi fordóma og fleira.. en ætla að setja það í vinnuskrifbókina mína í staðinn og worskjoppa það með nokkrum leikurum og vona að það skili sér í sköpunarferlinu og geti því kannski tjáð þessar hugsanir án þess að skammast.. ég held að fólk hlusti á upplifun og tilfinningar betur en öskur og skammir.. þannig að kannski energy of 8 skili sér betur? (orkan á milli áhorfendans og leikarans)

ókei bla.

hvenær koma krakkarnir heim? ég er svöng og vil ekki fara út í sjoppu því það er svo kalt. það er matarþáttur í sjónvarpinu... gott mál. einn strákur sagði mér í gær að bara drekka, ekki borða, til að losna við flensuna.. hver nennir því.. ég er búin að drekka líter af heitu vatni og nokkra kaffibolla í dag, ætti því að vera búin að pissa úr mér flensunni, en nei ég er bara svöng.

hvað segið þið annars?
ég er komin með jólakítl í magann.
ég vil ALLTAF vera á íslandi um jólin. ég verð svo mikið jólaheimabarn í desember.. finnst það best. hér er líka svo mikil borgarmenning þar sem jólin snúast um að fara í drykk með vinum.. sem er fínt fram í miðjan des finnst mér.. þá vil ég upplifa jólaandann og hann er góður heima.. hér kvarta margir yfir hvað jólin séu svo commercialized.. skapaðu jól þín sjálfur! mín jól fjölskylduna mína og vini.. þetta er tíminn sem ég hitti alla og geri allskonar krúttlegt..

ég ætla að fá mér mandarínu.
við Auðunn ætlum að hafa jólamúlladag í næstu viku.. en þá förum við að versla jólagjafirnar og allur dagurinn snýst um jólin og komast í stemmara.. mér finnst ekki gaman að kaupa jólagjafir í hádegispásu í stressi.. vil gera gjörning úr þessu.. koma svo heim og spila jólalög og vera merry.

við erum búin að koma svona hefð hér á heimilinu að hafa sunnudagsbrunch þar sem við kaupum fullt fullt af bakarísmat og ég geri túnfisksalat ala ómar pabbi og svo spjöllum við yfir matnum tímum saman.. ég lifi fyrir stemmara og þeim finnst það líka gaman.

jæja.. ég er nú kannski ekki að segja neinar fréttir.. nú nema við erum búin að ákveða að hafa mat og partý á gamlárs hérna heima hjá okkur í London.. þannig að ef þið viljið kíkja til London.. þið vitið hvar þið verðið á gamlárs.

jæja ljúflingar.

sé ykkur eftir 11daga!!

ást.
veils