Tuesday, November 27, 2007

when my imagination is starting to make me physically sick.....

ég veit ég er vonlaus í þessu bloggi.. veit ekki af hverju.. jú ég veit af hverju.
en ég held það sé gott fyrir mig að blogga núna reglulega.. í smá tíma.. fram að jólum.. fram að næsta æfingartímabili fram að næsta "peace of mind" tímabili.

það er svona haustþunglyndi í gangi.. samt ekki þunglyndi.. frekar þrengsli í kollinum.. svona eins og allt sé að kremjast og ég verð að losna við nokkrar hugsanir til að geta andað. kannski ég kaupi svona ljós sem maður horfir í 10 mínútur á dag og losnar þá við skammdegisþokuna inní manni.

skrítna er að allt er frekar ágætt bara.. en þá fer kollurinn á flug með "hvað ef" hvað ef kaffið hellist yfir mig ákkúrat núna? hvað ef tjúbið stoppar og rafmagnið fer af og ég verð sein.... hvað ef ég missi alla vini mína, maka, fjölskyldu, leik-companý.. nú þá á ég ekkert.

ég lifi alls ekki fyrir hluti.. upptalningin hér á undan er það sem ég á og lifi fyrir.

en já.. best að einbeita sér að deginum og komandi verkum.. tveir fundir í dag.. einn hjá part time vinnunni minni sem er random eins og ég hef sagt ykkur frá áður (model scouting) og svo Maddid fundur, erum að fara plana fyrir næstu sýningu.
svo í vikunni er Footprint fundur fyrir marketing hjá Exile sýningunni sem við erum að byrja að æfa fyrir. en annars bara já.. kaupa jólagjafir, fara til íslands!!! :)

við fljúgum heim 17.des. það verður ljúft..

ég þyrfti að gera jóga í dag.. er búin að vera í movement/jóga/dans/pilates fríi í næstum 3 vikur. það hefur ekki gerst lengi.. sennilegast einhver ár.. fann ég þurfti á því að halda.. en núna finn ég líka hvað ég er orðin restless í líkamanum.. best að byrja aftur.. líkaminn er búinn að sofa nógu lengi...

Auðunn er á fullu að skrifa ritgerðir.. síðasta árið hans í BA náminu.. svo er draumurinn New York.. ja eftir svona 3 ár.. segjum við núna allavega.. fer eftir verkefnum hjá mér og hvort hann fari beint í MA nám eða hvað verður..

fórum í partý um helgina þar sem við einmitt hittum new yorkerann Tom og eftir gott spjall um framtíðarplön okkar þá er víst stutt í míting í manhattan.. beygla og kaffi í east village..

jæja.. þetta var gott fyrir kollinn... bara blaaaaa.. eitthvað.

sakna ykkar!
mú.
veils

Thursday, November 08, 2007

post production blue

hæ.
búið að vera geðveiki að gera.
þróa Maddid sýninguna og setja hana aftur upp.
gekk vel, gerðum líka góða documentation og getum því múvað on yfir í næsta verk.
byrjum á því í næstu viku.
en í því verki mun ég sjá um leikstjórn og leika eitt hlutverk.
er komin með smá þreytu á maddid litlu því hún er orkufrek.
verðum sennilegast að semja fram að jólum og svo með prufu fyrir leikara á næsta ári.

annars er ég í einhverju stressi.. yfir bara öllu og engu.. þið skiljið.. ég ætlaði að fara upp í leikhús og mála vegginn aftur hvítann og laga til eftir okkur.. en mari reddaði því.. ég nenni engu í dag.. auðunn er í tölvunni hans jordi og isla í sninni tölvu og ég í okkar tölvu sem er að missa vitið..

erum að pæla í að koma heim um 18.des og fara aftur 28.des.. góðir 10 jóladagar.. höldum svo bara áramóta dinner+partý heima hjá okkur.. enda búum við rétt við ánna og getum svo bara öll rölt út og horft á bresku flugeldana.. sem verða sennilega ekki eins maganaðir og í rvk.. við bara þurfum að vera í London um áramótin því ég byrja á æfingum fyrir Exile strax eftir jólin og Auðunn þarf að skila inn ritgerð og allskonar jazz

ömm.. ég veit ekki hvað skal segja.
vinir okkar komu á sýninguna í gær svo það var setið lengi og drukkið upp í leikhúsi og allir orðnir smá fullir nema ég.. ég sem ætlaði nú aldeilis að leyfa mér að vera létt á því.. var bara svo þreytt eftir sýninguna að ég rétt náði að drekka 2 bjóra.. strákarnir voru á rassinum enda líka svo ánægðir með sýninguna, við stelpurnar sátum bara og hlógum af þeim og nutum þess að vera búnar með þetta verk. léttir. en svo vitum við að við eigum eftir að færa það annað seinna svo við grétum ekki útaf söknuði..

ókei ég skal tala um eitthvað annað.
ég er sem sagt þreytt, með post production blue, smá stressuð. ekki þunn, spennt, tóm, með létti, og mig vantar pening. fæ ekki pen fyrir en eftir helgi fyrir model scouting.. og já. mig langar í pizzu.. og íslenskt nammi... nammið i london er drasl.

what else?

já við auðunn erum að spá í að hoppa með bakpoka í overground fyrstu helgina í des og bara fara eitthvert sniðugt.. hverfa í 2-3 daga.. leika okkur smá.

ömm..
já endilega skrifið komment eða sögu eða eitthvað fyrir conceptið EXILE á þennann link:
http://gaellecornec.squarespace.com/exile-forum/

þið getið skrifað á íslensku eða ensku eða hvaða tungumáli sem þið viljið....
tékkið allavega á þessu..

ókei ég er farin..
tala við ykkur um helgina

Thursday, November 01, 2007

jæja nú jæja..
úlfur úlfur
talk no walk
big mouth no actions

and all that blues

ég veit ég er búin að lofa upp í kok bloggi og fréttum og viti menn. það er komið að því. ég er hætt að þykjast og byrjuð að skrifa.

in my defence þá erum við rétt núna komin með netið heima í "nýju" íbúðinni.

en hér er update fyrir ykkur kæru vinir:
við Auðunn erum sem sagt flutt í aðra íbúð hér rétt við ánna í London borg. búum með tveim vinum okkar (Isla og Jordi) og heimilislífið bara ansi fínt.
Jordi er sprelligosi sem fær mig til að hlægja af dramanu mínu og Isla er rithöfundur í leikfélaginu mínu og getum við því spjallað og haldið fundi jafnvel bara rétt fyrir svefninn (ef okkur fyndist það betra en að hitta mari og co á kaffihúsi eða bar)
svo er Auðunn manni minn bara eins og alltaf.. snillingur sem gerir morgunmat í rúmið (ég elda dinnerinn)

þessa dagana er ég með annann fótinn í leikhúsinu að þróa Maddid sýninguna.. en hún verður sett aftur upp í Nóvember. svo er ég að leika með öðrum leikhóp í sýningu sem heitir Exile og verður sett upp í Camden People's Theatre í byrjun Janúar.. þið komið á hana!! (8-14 jan)

nú svo er ég að vinna fyrir módelskrifstofu part-time í að leyta af módelum!! random vinna en góð fyrir leikara etc þar sem maður ræður allgjörlega hvenær og hvar maður vinnur... smá auka peningur til að halda sér uppi í dýrri London borg.
og Auðunn er á fullu í skólanum og bara ánægður með lífið. hann segir hæ btw.

jæja þetta er svona helsta updeitið..

ég loooofa að koma reglulega með fréttir núna.. ekkert úlfur úlfur.. núna er ég komin með netið svo það er engin afsökun. líka bara gaman að skrifa smá slúður yfir rauðvínsglasi eins og núna.. Auðunn að horfa á sjónvarpið, Jodi í sinni tölvu og Isla hjá kærastanum sínum..

jamms..
já.
á morgunn ætla ég svo að vinna með leikstjóranum mínum Gael og taka norrkar myndir af wannabees.. nóg af þeim hér í borg. svo ætlum við Auðunn á Water í Lyric.. svo á laugardaginn er leikæfing fyrir Maddid og matarboð um kvöldið og svo á sunnudaginn aftur leiksýning sem Mari produseraði... allskonar bara... en ég kannski heilsa upp á ykkur um helgina.

ókei
bið að heilsa
smúts