ég er alveg glötuð í þessu
skil ekki af hverju.. ætti svo sem að hafa nógann tíma í þetta þar sem ég er alltaf á netinu í listastyrktar leit og leikhúsrannsóknarleiðangri..
held ég verði duglegri þegar ég er komin aftur til London.
það er mánudagur og ég hafði hugsað mér að fara á kaffibarinn eða barinn til að skrifa en endaði hér á grandaveginum.. ókeypis kaffi og með því.. kósí bara
í gær fórum við stelpurnar (þegar ég segi stelpurnar þá er ég að tala um való vinkonur mínar) í lunch á oliver og sátum í næstum fjóra klukkutíma! aldeilis hægt að spjalla yfir lunchi.. svo var kaffi og vöfflur á grandaveginum og svo afmæli hjá Emelíönu minni um kvöldið. svo þetta var almennilegur sunnudagur...
saumó í vikunni (saumó eru MH vinkonur mína) og svo 2-3 matarboð og svo back to London:)
ég hef aldrei hlakkað eins mikið til!!
ég skal vera dugleg að blogga þá.. núna veit ég ekkert hvað ég á að segja.. ekki nenni ég að fara að æsa mig yfir einu né neinu núna.. það gæti gerst frekar um miðnætti.. en núna var kaffið að kicka inn svo ég er óskup nett á því og jafnvel bara hamingjusöm..
hlakka til að hitta ykkur sem flest áður en ég fer aftur út.. sem sagt fyrir laugardaginn..
en núna ætla ég að halda áfram að skrifa...
ég heyri í ykkur fljótlega!
